Sögur úr holtinu....
Daglegt líf fjölskyldunnar á Borgarholtsbraut


föstudagur, október 31, 2008

Hrekkjavaka

Bekkurinn hennar Söndru eru í skrúðugum búningum í morgunsárið því nú er komin hrekkjavaka. Það er venjulegur skóladagur fyrir hádegi en hádegismaturinn óvenjulegur, pizzapartí í vel skreyttri skólastofunni. Svo er farið í skrúðgöngu í Central Park og dagurinn endar á partíi í skólastofunni.




Svipuð dagskrá var hjá Unni, en auk hefðbundinnar veislu var haldin búningakeppni meðal krakkanna. Það er skemmst frá því að segja að Unnur vann fyrstu verðlaun fyrir frábært gervi, en hún var klædd eins og Jokerinn úr the Dark Knight.



Um kvöldið er komið að hinu árvissa hrekkjavökuteiti í Leighton house. Við klæðum okkur öll í búninga og gerum okkur tilbúin. Ég klæði mig upp í búning NYPD á meðan Elín breytist í kúrekastelpu. Hátíðin byrjar niður í andyri í pizzum og muffins þar sem okkur gefst tækifæri á að spjalla við nágranna okkar á meðan krakkarnir ærslast um. Anna vinkona hennar Söndru er í heimsókn og finnst voða gaman.




Eftir partíið fara allir krakkanir í stigagangana að leika "trick-and-treat" og safna að sér ógrynni af sælgæti. Við Elín stöndum vaktina í íbúðinni og gefum áfjáðum krökkum súkkulaði. Stelpurnar koma löngu síðar til baka með fulla poka, dauðþreyttar eftir að hafa gengið allar hæðirnar.



Við skilum Önnu af okkur upp á Upper West Side og Sandra verður þar eftir og fær að gista. Við Elín og Unnur höldum svo áfram í partíi hjá Baldri samstarfsmanni mínum og Svönu konu hans, sem er í senn bæði hrekkjavökupartí og kveðjupartí, en þau flytja brátt til Íslands. Íslensk tónlist er spiluð í botni og endum kvöldið í góðum félagsskap Íslendinga í New York.


Fleiri myndir

- posted by Ziggy | 11:30 PM


fimmtudagur, október 30, 2008

Útskurður

Við nýtum kvöldið í að skera út graskerið góða sem við pikkuðum upp í eplatýnslunni. Stelpurnar sætta sig ekki við hefðbundið snið, því þær vilja ekki vera gamalsdags. Við skerum því út flotta hryllingsmynd eftir forsniði.

- posted by Ziggy | 11:30 PM


þriðjudagur, október 28, 2008

Níu ára afmæli Söndru

Sandra var vakin upp með afmælissöng og pökkum klukkan sex í morgun. Við byrjuðum svo skóladaginn á því að fá okkur morgunkaffi á Starbucks í tilefni dagsins, en Sandra er orðin níu ára.

Eftir skóla býður Sandra vinkonu sinni Sophiu heim í afmælisköku. Við syngjum afmælissönginn aftur, í þetta skiptið á ensku, og Sandra blæs kerti. Kakan er ljúffeng og fá sér allir aftur á diskinn, nema Pétur Þór sem lætur sér kjúkling duga. Stelpurnar leika sér svo saman fram á kvöld með afmælisgjafirnar.

Söndru fannst svo gaman í dag að hún vildi helst eiga aftur afmæli á morgun.



Fleiri myndir

- posted by Ziggy | 11:30 PM


sunnudagur, október 26, 2008

Six Flags

Það er gullfallegur haustdagur og við brunum suður New Jersey Turnpike í góða veðrinu niður að six flags skemmtigarðinum en hann er rúmlega klukkutíma frá Manhattan. Þrátt fyrir frábært veður er garðurinn lang frá því að vera troðinn og fáum við bílstæði rétt við innganginn.



Við eyðum öllum deginum í hinum ýmsu tækjum. Við Unnur förum í stærri rússibanana en Sandra og Elín komu með okkur í þá minni. Auk tækjanna förum við á tvær sýningar. Annars vegar sjáum við tígrísdýrasýningu og hins vegar dávald sem lætur valda áhorfendur fremja hin ýmsu voðaverk.



Um sex leytið umbreytist garðurinn og hrekkjavöku-stemmningin tekur við. Garðurinn er lýstur upp og þakinn dulúðlegri þoku á meðan hin ýmsu skrýmslu bregða vegfarendum. Eftir nokkrar rússíbanaferðir fáum við að lokum nóg og höldum aftur heim á leið.


Fleiri myndir

- posted by Ziggy | 1:12 AM


sunnudagur, október 19, 2008

Apple-picking

Við brunum eftir þjóðveginum í blæjubílnum upp eftir hraðbrautinni í gegn um Bronx áleiðis að Westchester. Við höldum blæjunni niðri í þetta skiptið enda er aðeins farið að kólna í veðri. Eftir klukkutíma akstur upp Hudson valley komum við loksins á áfangastað, lítið bóndabýli þar sem almenningur getur týnt epli af trjánum.



Við sækjum okkur poka og fáum far aftan á traktor út að eplaekrunni. Við leggjum svo af stað fótgangandi, en finnum lítið af eplum, en það skaðar ekki mikið því náttúrufegurðin er mikil og glampandi sól. Þau epli sem eftir eru hafa nú þegar fallið af trjánum og finnum við mörg heilleg og söfnum í poka. Eftir langan göngutúr finnum við loksins lítið epli hátt uppi í miðjum garðinum og næ að kippa því niður með tilhlaupi. Við lítum svo við í garðinum við hliðina og stelpurnar velja sér grasker til að taka með heim fyrir hrekkjavöku.

Kvöldið eldar Elín svo íslenska ýsu með eplum og við gæðum okkur á heitu eplapie í desert. Sannkölluð eplahelgi.



Fleiri myndir

- posted by Ziggy | 11:30 PM


þriðjudagur, október 07, 2008

4.bekkur orðinn íslenskur?

Í dag heimsótti bekkurinn hennar Söndru Sameinuðu þjóðirnar. Það fyrsta sem Sandra sér er Íslenski fáninn og leiðsögumaðurinn tilkynnti bekknum að í dag fengju allir Íslenskan mat í hádeginu. Krakkarnir áttu að svara hvað væri miður gott í heiminum og auðvitað svaraði Sandra að í sínu landi væri slæmt að krónan væri á niðurleið.
Í hádeginu var svo íslenskt hlaðborð með lambalæri,lax ofl. í desert voru svo pönnsur,skyr ofl.
nöfnin á réttunum voru öll á íslensku,svo að Sandra þurfti að þýða fyrir bekkinn sinn hvað hver réttur væri.

- posted by Elín | 7:24 PM
Veðrið í NYC
The WeatherPixie
Greinasafn
Undirsidur
Tenglar
Stuttmyndir