| Sögur úr holtinu.... Daglegt líf fjölskyldunnar á Borgarholtsbraut |
|
föstudagur, október 31, 2008
Hrekkjavaka
Svipuð dagskrá var hjá Unni, en auk hefðbundinnar veislu var haldin búningakeppni meðal krakkanna. Það er skemmst frá því að segja að Unnur vann fyrstu verðlaun fyrir frábært gervi, en hún var klædd eins og Jokerinn úr the Dark Knight. Um kvöldið er komið að hinu árvissa hrekkjavökuteiti í Leighton house. Við klæðum okkur öll í búninga og gerum okkur tilbúin. Ég klæði mig upp í búning NYPD á meðan Elín breytist í kúrekastelpu. Hátíðin byrjar niður í andyri í pizzum og muffins þar sem okkur gefst tækifæri á að spjalla við nágranna okkar á meðan krakkarnir ærslast um. Anna vinkona hennar Söndru er í heimsókn og finnst voða gaman. Eftir partíið fara allir krakkanir í stigagangana að leika "trick-and-treat" og safna að sér ógrynni af sælgæti. Við Elín stöndum vaktina í íbúðinni og gefum áfjáðum krökkum súkkulaði. Stelpurnar koma löngu síðar til baka með fulla poka, dauðþreyttar eftir að hafa gengið allar hæðirnar. Við skilum Önnu af okkur upp á Upper West Side og Sandra verður þar eftir og fær að gista. Við Elín og Unnur höldum svo áfram í partíi hjá Baldri samstarfsmanni mínum og Svönu konu hans, sem er í senn bæði hrekkjavökupartí og kveðjupartí, en þau flytja brátt til Íslands. Íslensk tónlist er spiluð í botni og endum kvöldið í góðum félagsskap Íslendinga í New York. Fleiri myndir - posted by Ziggy | 11:30 PM fimmtudagur, október 30, 2008
Útskurður
þriðjudagur, október 28, 2008
Níu ára afmæli Söndru
Eftir skóla býður Sandra vinkonu sinni Sophiu heim í afmælisköku. Við syngjum afmælissönginn aftur, í þetta skiptið á ensku, og Sandra blæs kerti. Kakan er ljúffeng og fá sér allir aftur á diskinn, nema Pétur Þór sem lætur sér kjúkling duga. Stelpurnar leika sér svo saman fram á kvöld með afmælisgjafirnar. Söndru fannst svo gaman í dag að hún vildi helst eiga aftur afmæli á morgun. Fleiri myndir - posted by Ziggy | 11:30 PM sunnudagur, október 26, 2008
Six Flags
Við eyðum öllum deginum í hinum ýmsu tækjum. Við Unnur förum í stærri rússibanana en Sandra og Elín komu með okkur í þá minni. Auk tækjanna förum við á tvær sýningar. Annars vegar sjáum við tígrísdýrasýningu og hins vegar dávald sem lætur valda áhorfendur fremja hin ýmsu voðaverk. Um sex leytið umbreytist garðurinn og hrekkjavöku-stemmningin tekur við. Garðurinn er lýstur upp og þakinn dulúðlegri þoku á meðan hin ýmsu skrýmslu bregða vegfarendum. Eftir nokkrar rússíbanaferðir fáum við að lokum nóg og höldum aftur heim á leið. Fleiri myndir - posted by Ziggy | 1:12 AM sunnudagur, október 19, 2008
Apple-picking
Við sækjum okkur poka og fáum far aftan á traktor út að eplaekrunni. Við leggjum svo af stað fótgangandi, en finnum lítið af eplum, en það skaðar ekki mikið því náttúrufegurðin er mikil og glampandi sól. Þau epli sem eftir eru hafa nú þegar fallið af trjánum og finnum við mörg heilleg og söfnum í poka. Eftir langan göngutúr finnum við loksins lítið epli hátt uppi í miðjum garðinum og næ að kippa því niður með tilhlaupi. Við lítum svo við í garðinum við hliðina og stelpurnar velja sér grasker til að taka með heim fyrir hrekkjavöku. Kvöldið eldar Elín svo íslenska ýsu með eplum og við gæðum okkur á heitu eplapie í desert. Sannkölluð eplahelgi. Fleiri myndir - posted by Ziggy | 11:30 PM þriðjudagur, október 07, 2008
4.bekkur orðinn íslenskur?
Í hádeginu var svo íslenskt hlaðborð með lambalæri,lax ofl. í desert voru svo pönnsur,skyr ofl. nöfnin á réttunum voru öll á íslensku,svo að Sandra þurfti að þýða fyrir bekkinn sinn hvað hver réttur væri. - posted by Elín | 7:24 PM sunnudagur, september 28, 2008
Safnaleiðangur
Fleiri myndir - posted by Ziggy | 11:30 PM sunnudagur, september 21, 2008
Ís á second avenue
Fleiri myndir - posted by Ziggy | 11:30 PM laugardagur, september 13, 2008
Greenwich CT
Morguninnn eftir förum við í skoðunarferð um hin ýmsu hverfi Greenwich og keyrum fram hjá hinum ýmsu villum. Við meira að segja kíkjum á eitt hús sem er á sölu, svona til að bera saman við manhattan. Um eftirmiðdaginn tökum við svo lestina til baka til Manhattan. Fleiri myndir - posted by Elín | 3:20 PM fimmtudagur, september 11, 2008
Ellefti september
sunnudagur, ágúst 24, 2008
Tyrknenskir dagar
Stoppuðm stuttlega í bás Kazakstan og reynum að finna Borat, en hann hefur greinilega brugðið sér eitthvað frá. Fleiri myndir - posted by Ziggy | 12:13 AM þriðjudagur, ágúst 19, 2008
Fjölskyldan sameinuð á heimleið
Flugfreyjan tilkynnir farþegum að veik stúlka sé í sjúkratjaldi aftast á leiðinni í aðgerð. Flugvélin fær sem betur fer forgangsmeðferð í aðflugi að JFK þannig að hægt verði að koma stúlkunni á áfangastað sem fyrst. Við hugsum fallega til hennar og vonum innilega að henni gangi vel. New York fagnar okkur með sínum einstaka hætti. Þegar heim er komið blasir við okkur tignarlegt sólarlagið sem er svo einstakt á þessum árstíma. Því miður er nánast engin leið að ná því á mynd. Fleiri myndir - posted by Ziggy | 11:30 PM |
|
||||
|
| |||||